Nýr kjarasamningur FSS samþykktur

Anna Rósa Gestsdóttir og Kristinn Helgi Sveinsson, voru fulltrúar fyrir hönd FSS í samninganefndinni.

Samkomulag FSS og fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar og framlengingu á kjarasamningi aðila, sem undirritað var 28. júní 2024 með fyrirvara um samþykki félagsmanna.

Atkvæðagreiðslu FSS um kjarasamninginn sem gildir frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028 er lokið og niðurstöður eru þessar;

Á kjörskrá voru 166. Atkvæði greiddu 87 félagsmenn.

Já sögðu 77 eða 88,51%
Nei sögðu 7 eða 8,05%
Þrír tóku ekki afstöðu eða 3,45%

Samkomulagið var því samþykkt.