Stjórn FSS hefur sent tölvupóst til félagsfólks FSS og kallað eftir umsóknum um orlofshús fyrir sumarið 2026. Um er að ræða fjögur hús, eitt í Munaðarnesi, eitt í Biskupstungum, eitt í Flatey og á Akureyri.
Sumarleigan er frá 29. maí til 28. ágúst, frá föstudegi til föstudags, viku í senn.
Félagsfólk er beðið um að koma óskum sínum á framfæri eigi síðar en 18. febrúar nk.
Umsóknir skulu berast á netfangið fss_orlofshus@rfs.is
Að umsóknarferli loknu verða laus tímabil birt félagsfólki og gildir þá fyrstur kemur fyrstur fær.