Hús nr. 19
Húsið er í Munaðarnesi í Borgarfirði. Í húsinu eru 2 svefnherbergi annað með hjónarúmi, hitt með koju, þar sem gert er ráð fyrir að tveir geti sofið í neðri kojunni en einn í efri. Þá er ferðabarnarúm undir hjónarúminu. Sængur og koddar eru fyrir 6 manns.
Á húsinu er merki FSS og lyklakassi með talnalás.
Í húsinu eru sjónvarp og afruglari.
Í eldhúsi eru ísskápur með frystihólfi, eldavél og önnur rafmagnstæki og borðbúnaður fyrir 12 manns.
Á pallinum er heitur pottur, útiborð og stólar og í geymslunni er gasgrill.
Leigjendur skulu taka með sér sængurföt, handklæði, viskastykki, tuskur, klósettpappír, sápur og þvottaefni.
Ekki er leyfilegt að hafa heimilisdýr í húsinu. Reykingar eru stranglega bannaðar.
Krafist er góðrar umgengni. Við brottför skal skila húsinu hreinu, eins og þið vilduð koma að því.